VINADA óáfengt freyðandi rósavín í 750 ml.
VINADA óáfengt freyðandi rósavín í 750 ml.
Spænskt Tinteling Tempranillo freyðandi rósavín!
Freyðandi vegan rósavín frá VINADA sem á rætur sínar að rekja frá spænska héraðinu La Mancha og er gert úr einstakri blöndu af Tempranillo þrúgum.
Verðlaunavín frá VINADA sem er framleitt eins og venjulegt áfengt vín en í lokin er áfengið hægt og rólega hreinsað út með svokallaðri sogaðferð sem viðheldur áfram frábæru bragði en losar vínið við alkohólið.
- Bragðnótur: Rauðir ávextir; Jarðarber, rifsber og hindber.
- 0.0% alkohól
- Vegan
- Aðeins 21 kcal per glas sem er 69% minna en í venjulegu áfengu freyðivíni
- Sykurlítið; 5 gr. / 100 ml.
Það er fullkomlega öruggt að njóta drykksins á meðgöngu sem og fyrir þau sem aðhyllast áfengislausan lífsstíl.
Algengar spurningar
Hvað þýðir að vín sé áfengishreinsað?
Alvöru áfengislaus vín fara í gegnum og þola allt vínvinnsluferlið. Að lokum eru þau áfengishreinsuð sem skilar af sér áfengislausri lokaafurð. Hægt er að gera þetta tvo mismunandi vegu, vinsælasta leiðin er að hita vínið upp sem verður til þess að etanólið í því gufar upp.
Hágæða framleiðendur gæta þess að hita vínið upp í sem lægst hitastig, sem gerir þá etanólinu kleift að gufa upp án þess að vínið sé eldað. Niðurstaðan verður alvöru og hágæða óáfengt vín (< 0.5%).
Hver er skilafresturinn þegar verslað er í vefverslun?
Kaupandi hefur 14 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna, henni sé skilað í góðu lagi í óuppteknum upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með. Endurgreiðsla er framkvæmd að fullu ef ofangreind skilyrði eru uppfyllt og eftir að varan er móttekin. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd. Vinsamlegast hafið samband við Cin Cin ehf. með spurningar.
Hvað líður langur tími frá því að pantað er og vörurnar berast?
Allar vörur eru afgreiddar samdægurs ef pantað er fyrir hádegi á virkum dögum, næsta virka dag ef pantað er um helgi. Sé varan ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar.
Öllum pöntunum er dreift af Íslandspósti eða Dropp og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts og Dropp um afhendingu vörunnar.