Skip to product information
1 of 1

Savyll Moscow Mule 250 ml.

Savyll Moscow Mule 250 ml.

Venjulegt verð 445 ISK
Venjulegt verð Útsöluverð 445 ISK
Á tilboði Uppselt
-

Moscow Mule frá Savyll er áfengislaus endurgerð af hinum klassíska Moscow Mule. Afar bragðgóður og alls ekki síðri en sá upprunalegi. Savyll leggur mikið upp úr því að framleiða drykkina sína úr gæðablöndu af hráefnum til að kalla fram alvöru kokteilupplifun, án áfengis. Þar að auki er sérstök áhersla lögð á að vörurnar séu náttúrulegar og sykurlitlar.

  • Áfengislaus (0,0%)
  • Glútenfrír
  • Náttúruleg hráefni
  • Vegan friendly
  • 29 kcal / 100 ml
  • Sykur (3,5 g / 100 ml)

Það er fullkomlega öruggt að njóta drykkjarins á meðgöngu sem og fyrir þau sem aðhyllast áfengislausan lífsstíl.

Lesa meira

Algengar spurningar

Hvað þýðir að vín sé áfengishreinsað?

Alvöru áfengislaus vín fara í gegnum og þola allt vínvinnsluferlið. Að lokum eru þau áfengishreinsuð sem skilar af sér áfengislausri lokaafurð. Hægt er að gera þetta tvo mismunandi vegu, vinsælasta leiðin er að hita vínið upp sem verður til þess að etanólið í því gufar upp.

Hágæða framleiðendur gæta þess að hita vínið upp í sem lægst hitastig, sem gerir þá etanólinu kleift að gufa upp án þess að vínið sé eldað. Niðurstaðan verður alvöru og hágæða óáfengt vín (< 0.5%).

Hver er skilafresturinn þegar verslað er í vefverslun?

Kaupandi hefur 14 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna, henni sé skilað í góðu lagi í óuppteknum upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með. Endurgreiðsla er framkvæmd að fullu ef ofangreind skilyrði eru uppfyllt og eftir að varan er móttekin. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd. Vinsamlegast hafið samband við Cin Cin ehf. með spurningar.

Hvað líður langur tími frá því að pantað er og vörurnar berast?

Allar vörur eru afgreiddar samdægurs ef pantað er fyrir hádegi á virkum dögum, næsta virka dag ef pantað er um helgi. Sé varan ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar.

Öllum pöntunum er dreift af Íslandspósti eða Dropp og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts og Dropp um afhendingu vörunnar.