Skip to product information
1 of 1

Leitz Eins Zwei Zero áfengislaust Riesling hvítvín 750 ml.

Leitz Eins Zwei Zero áfengislaust Riesling hvítvín 750 ml.

Venjulegt verð 1.995 ISK
Venjulegt verð Útsöluverð 1.995 ISK
Á tilboði Uppselt
-

Þjóðverjar hafa verið að framleiða áfengislaus vín í yfir 70 ár og á því tímabili hefur verið stanslaus þróun í þróun á gæðum á þeim vínum.

Verðlaunavínframleiðandinn Johannes Leitz frá heimfrægu vínekrunni í Rüdesheim í Þýskalandi kynnir til leiks EINS ZWEI ZERO sem hefur verið í þróun lengi með það markmiði að vera áfengislaus vín í heimsklassa.

EINS-ZWEI-ZERO Riesling er frábært ferskt Riesling hvítvín sem inniheldur bragðnótur af sítrusávæxtum, rabbabara og rauðum eplum. Eftirbragðið er þurrt og langt.

  • 0,0% alkohól
  • Sykurlítið (4,9 gr. / 100 ml.)
  • 24 Kcal / 100 ml.

Fæst í Krónan Lindum, Granda og Selfossi.

Það er fullkomlega öruggt að njóta drykksins á meðgöngu sem og fyrir þau sem aðhyllast áfengislausan lífsstíl.

Lesa meira

Algengar spurningar

Hvað þýðir að vín sé áfengishreinsað?

Alvöru áfengislaus vín fara í gegnum og þola allt vínvinnsluferlið. Að lokum eru þau áfengishreinsuð sem skilar af sér áfengislausri lokaafurð. Hægt er að gera þetta tvo mismunandi vegu, vinsælasta leiðin er að hita vínið upp sem verður til þess að etanólið í því gufar upp.

Hágæða framleiðendur gæta þess að hita vínið upp í sem lægst hitastig, sem gerir þá etanólinu kleift að gufa upp án þess að vínið sé eldað. Niðurstaðan verður alvöru og hágæða óáfengt vín (< 0.5%).

Hver er skilafresturinn þegar verslað er í vefverslun?

Kaupandi hefur 14 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna, henni sé skilað í góðu lagi í óuppteknum upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með. Endurgreiðsla er framkvæmd að fullu ef ofangreind skilyrði eru uppfyllt og eftir að varan er móttekin. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd. Vinsamlegast hafið samband við Cin Cin ehf. með spurningar.

Hvað líður langur tími frá því að pantað er og vörurnar berast?

Allar vörur eru afgreiddar samdægurs ef pantað er fyrir hádegi á virkum dögum, næsta virka dag ef pantað er um helgi. Sé varan ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar.

Öllum pöntunum er dreift af Íslandspósti eða Dropp og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts og Dropp um afhendingu vörunnar.