Skip to product information
1 of 1

BOLD ZERO - Sykurlaus kældur þrefaldur espressó

BOLD ZERO - Sykurlaus kældur þrefaldur espressó

Venjulegt verð 395 ISK
Venjulegt verð Útsöluverð 395 ISK
Á tilboði Uppselt
-

BOLD ZERO er eflaust eini kældi kaffidrykkurinn á markaðnum á Íslandi í dag, sem er án sykurs og kaloría. Drykkurinn inniheldur þrefaldan espressó og býður upp á klassíska ískaffiupplifun, þó með sterkara kaffibragði og meiri krafti. 

Orkan í drykknum er 100% náttúruleg og koffínið kemur beint úr kaffibaununum. Þannig getur þú forðast framleitt koffín, sem annars er oft notað í kaffidrykki og aðrar orkuvörur. Náttúrulega koffínið úr kaffinu gefur stöðugri og langvarandi virkni þar sem það inniheldur náttúrulega líka andoxunarefni og vítamín.


Ekki er ráðlagt að neyta BOLD drykkjanna á meðgöngu eða með barn á brjósti.

Lesa meira

Algengar spurningar

Hvað þýðir að vín sé áfengishreinsað?

Alvöru áfengislaus vín fara í gegnum og þola allt vínvinnsluferlið. Að lokum eru þau áfengishreinsuð sem skilar af sér áfengislausri lokaafurð. Hægt er að gera þetta tvo mismunandi vegu, vinsælasta leiðin er að hita vínið upp sem verður til þess að etanólið í því gufar upp.

Hágæða framleiðendur gæta þess að hita vínið upp í sem lægst hitastig, sem gerir þá etanólinu kleift að gufa upp án þess að vínið sé eldað. Niðurstaðan verður alvöru og hágæða óáfengt vín (< 0.5%).

Hver er skilafresturinn þegar verslað er í vefverslun?

Kaupandi hefur 14 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna, henni sé skilað í góðu lagi í óuppteknum upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með. Endurgreiðsla er framkvæmd að fullu ef ofangreind skilyrði eru uppfyllt og eftir að varan er móttekin. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd. Vinsamlegast hafið samband við Cin Cin ehf. með spurningar.

Hvað líður langur tími frá því að pantað er og vörurnar berast?

Allar vörur eru afgreiddar samdægurs ef pantað er fyrir hádegi á virkum dögum, næsta virka dag ef pantað er um helgi. Sé varan ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar.

Öllum pöntunum er dreift af Íslandspósti eða Dropp og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts og Dropp um afhendingu vörunnar.